19 May 2011
Nordic-Baltic Kóramótið 2012
Ég sá á heimasíðu mótsins http://nbchoir.net/ að finnarnir biðja um forskráningu á mótið. Það gera þeir til að kanna áhuga .... þetta er ekki endanleg skráning.
Svo ef þið eruð að hugsa um að fara til Turku í 2012 þá endilega skoðið heimasíðuna og skráið kórinn.
Mótið verður 21. - 26. ágúst 2012
Fyrir karlakóra - Nordic-Baltic karlakóramót verður í Eistlandi 15. - 17. júní 2012
29 April 2011
Landsmót Kvennakóra 2011
Í dag, 29. apríl hefst á Selfossi Landsmót Íslenskra Kvennakóra.
Talið er að um 600 konur komi saman til söngs og skemmtunar yfir helgina.
Laugardaginn 30. apríl kl 16:00 verða tónleikar á tveimur stöðum samtímis.
Í Selfosskirkju og IÐU - Íþróttahúsi FSU
Sunnudaginn 1. maí verða lokatónleikar mótsins haldnir í IÐU kl 15:00
19 March 2011
13 March 2011
22 November 2010
Last Choir Standing - Þáttur hjá BBC
Hvernig væri nú að íslenskar sjónvarpsstöðvar tækju upp þætti í líkingu við þennan sem var á BBC? Efni sjónvarpsstöðvanna er orðið svo útþynnt og glatað að við ættum að taka okkur saman og færa þeim tillögur að góðu efni.
Lesið heimasíðu þáttarins !
Kórinn sem vann þessa keppni heitir Only Men Aloud!
Lesið heimasíðu þáttarins !
Kórinn sem vann þessa keppni heitir Only Men Aloud!
09 May 2010
Subscribe to:
Posts (Atom)

